Mykrinu í dvelur
djákninn og hann kvelur
stúlku þá er hann eitt elskaði
Gægist nú á glugga
augu rauð í skugga
blótar Guði og hann skyggist inn
Djákni beiskur bölvar
kirkjan djöfli aftrar
Lítur inn og öskrar hástöfum
“Komdu nú með mér
Garún mín eða ég
ryðst inn í kirkju og ræni þér”
Felur þig í ótta
frá mér enn á flótta
veistu ei að ég mun finna þig
örmum mínum í þá
veröld þinni frá
munum við svo hverfa í algleymi
Þinn Drottinn svarar engum ópum
köllum eða hrópum
svikull bæði og grimmur er
Hristu af þér Drottins hlekki
þeir halda okkur ekki
Herra þinn er máttlaus hér
Er mér þá öllum lokið?
Eru þá lífsins dyr lokaðar?
Mun mín kvöl aldrei enda?
Ég á nú inni heljardvöl
Einn get ég ei verið
Hún gæti linað mínar þjáningar
Garún, nú ég skal sýna þér
Að líf þitt skal tilheyra mér
Fylltu nú mitt svarta hjarta
Hvar er ljósið bjarta, sem að áður skein svo skært?
Ég hef gengið kalda drauma
Hatrið fundið krauma, er mennirnir sofa vært
Ég skal sýna þér hvað býr í myrkrinu
liggur falið handan lífs og dauða
Þetta líf er aðeins blekking
öll mannanna þekking, fjarar út er vindar gnauða
credits
from Myrká,
released June 1, 2016
Recorded at Duggan by Riffrildi 2016
Album artwork Elín Magnúsdóttir