We’ve updated our Terms of Use to reflect our new entity name and address. You can review the changes here.
We’ve updated our Terms of Use. You can review the changes here.

S​æ​ring

from Myrká by Riffrildi

/
  • Streaming + Download

    Includes unlimited streaming via the free Bandcamp app, plus high-quality download in MP3, FLAC and more.
    Purchasable with gift card

      $1 USD  or more

     

lyrics

Vættir svífa vængjum á
er manna vitni hræðast vá
stálgrár himinn svartur sær
seiðkarlinn hann dregur nær

Andlit hulið, klæði svört
sindra augu stjörnubjört
nötrandi af kynngimætti
stendur móti (/andspænis) myrkravætti

Gleypa vindflot tunglsins ljós
mætast nú við feigðarós
drómar myrkurs sækja að
vanhelga árar bænastað

Til atlögu nú djákni ræðst
heljarmætti hefur glæðst
hvíta fönn nú þekur blóð
Djákni fylltur djöfulmóð

Nötrar jörð
fjallsins börð
klettar falla
er djákni kallar

Þú þekkir ekki sannann mátt
En þú munt kynnast honum brátt
Þinn Guð er breiskur og brotinn
Grimmur, svikull, rotinn

Ég hef heyrt stjörnurnar gráta
Ég hef séð englaskara smábörnum slátra
Ég hef heyrt myrkursins kall
Ég þekki meistarans nafn


Englaherir sækja að
berja augum bæjarhlað
blóði drifin ötuð jörð
Djákni krýpur í mýrarsvörð

Seiðkarlinn þá særir fljótt
galdrar lýsa dimma nótt
djúpa gröf hann djákna rekur
dregur til bjarg sem jörðu skekur

credits

from Myrká, released June 1, 2016
Recorded at Duggan by Riffrildi 2016
Album artwork Elín Magnúsdóttir

license

all rights reserved

tags

about

Riffrildi Reykjavik, Iceland

contact / help

Contact Riffrildi

Streaming and
Download help

Report this track or account