Stigið á bak og riðið af stað
senn með dauða hún ríður í hlað
fjarar líf um feigðarós
hverfult reynist drottins ljós
Yfirlit fölt og húðin köld
Nálæg eru myrkravöld
Ótta fylltur næturþær
Í hjarta Djákna ljósið deyr
Máninn líður, dauðinn ríður
í iðrum heljar djákni bíður
Garún garún svaraðu mér
hvað þér fyrir sjónir ber
Í hnakka þínum hvítan blett
er þú hleypir honum faxa á sprett
sé ég það, þú sýnir mér
í tunglskini skín kúpan ber
Garún garún hlustaðu nú
óttast eigi mig skalt þú
við ríðum harðar svo haltu fast
Í eilífð skulum sameinast
Myrká nálgast við náum senn
Yrtu ei ekki neina menn
stígðu hér af hestinum
haltu með mér að grafreitnum
Máninn líður, dauðinn ríður
í iðrum heljar djákni bíður
Garún garún svaraðu mér
hvað þér fyrir sjónir ber
Í hnakka þínum hvítan blett
er þú hleypir honum faxa á sprett
sé ég það, þú sýnir mér
í tunglskini skín kúpan ber
Garún
credits
from Myrká,
released June 1, 2016
Recorded at Duggan by Riffrildi 2016
Album artwork Elín Magnúsdóttir