1. |
Forspil
03:14
|
|||
2. |
Djákninn
03:51
|
|||
Ískaldur hroki við Eyjafjörð
Um kirkjurjáfur, hann blæs af mætti
Í Hörgárdal kirkja, mennina kætti
Djákni hennar sálum veitir vörð
Kuldinn hann bítur, en áfram þó
Kirkjunnar menn í lífs ólgusjó
Veður það versnar í storm það stefnir
Vetur konungur sín loforð efnir
Djákni, hann ríður um rökkurtóm
Fangi í vetrarríki
Fyllist nú dalur af klukknahljóm
Ómar í húmsins díki
Hann hjarta sitt gaf
Meðan heimurinn svaf
Herðast örlagabönd
Svikul er drottins hönd
Myrká
Guðrún, með guðhrætt hjarta tært
Hefur nú djákna hjarta í haldi
Mannskepnan aldrei hefur lært
Ástin hún verður margra grandi
Í hyldýpið flæmd
Máttlaus og dæmd
Brunnu svo heitt
En það er ekkert, sem bítur, á kuldanum við
Myrká
|
||||
3. |
Vatnið
07:02
|
|||
Ískalt vatnið nístir inn að beini
Kolsvart myrkrið hlær að kvalaveini
Straumur, þungur, lemur mér í grjótið
En yfirgnæfir þó samt ekki övæntingarópið
Kyngi vatni, minn seinasti sopi
Brotnir limir halda ei þreyttum manni á floti
Hesturinn Faxi horfinn mínum sjónum
Miskunnarlaus dauðinn loksins læsir í mig klónum
Allt sem er
Ég skal gefa frá mér hvað sem er
Ef ég Guðrúnu, fæ að hafa í faðmi mér
Hvað sem er
Ef einhver er að hlusta hér
Ég áru mína og sálu gef
Djákni,
reyndu hjarta þitt að sefa
því samningar við neðra munu aldrei neinum gefa
Djákni,
mundu nú hvar tryggð þín liggur
því samningar við neðra hagnast aldrei þeim sem þiggur.
Drottinn ég bíð
þér hef ég þjónað um alla tíð
Mín sál er þín
blástu í mig lífi er ljósið dvín
Drottinn, hvar ertu núna?
Er það svona sem þú verðlaunar trúna?
Drottinn, finnurðu ei hryggð mína?
Er það svona er þú verðlaunar tryggð mína?
Drottinn, hví svararðu eigi?l
Er þér sama þó að þjónn þinn deyji?
Drottinn, allt þitt ríki má brenna
Hrapaðu af himnum í dýpstu iður heljar
Allt sem er - Ég skal gefa frá mér hvað sem er,
Ef ég Guðrúnu fæ að hafa í faðmi mér
Hvað sem er - Ef að einhver er að hlusta hér
ég áru mína tryggð hjarta og eigin sálu gef
Drottinn, fyrst þú mér ei svarar
ég finn að kölski á mér fótinn snarar
Drottinn, þú kostar mig sál
ég legg hana að veði fyrir lífspurssmál
Kölska, nú ég handsala við
samninginn og nú ég bið
Garún, gef mér nú þína ást
fyrir þig ég mun að eilífu þjást
|
||||
4. |
Faxi
01:44
|
|||
5. |
Aðfangadagur
03:41
|
|||
Afturganga um landið fer
Dauðinn ríður, á hraðferð er
Hófar berja frosna jörð
Myrkur umlykur eyjafjörð
Uppúr ánni og heldur í Hörgárdal
Að gefa heitkonu sinni einfalt val
Gröfin grafin og hliðin opnast
Jarðnesk àst er hefur afmyndast
Frosið land og áin beljar
framundan liggur hlið til heljar
Neðan að kölski kyndir eld
fyrir sál er hefur verið seld
Guði týndur nú djákni er
Hröðu skeiði nú Faxi fer
Djákna genginn á baki ber
Aftur frá dauðum í satans her
Að bænum ríður og staðnast nú
Hvar er bölvuð prestins frù
Sauðir guðs sig signa nù
með sína gagnslausu bölvuðu drottins trú
Frosið land og áin beljar
framundan liggur hlið til heljar
Neðan að kölski kyndir eld
fyrir sál er hefur verið seld
|
||||
6. |
Reiðin
03:08
|
|||
Stigið á bak og riðið af stað
senn með dauða hún ríður í hlað
fjarar líf um feigðarós
hverfult reynist drottins ljós
Yfirlit fölt og húðin köld
Nálæg eru myrkravöld
Ótta fylltur næturþær
Í hjarta Djákna ljósið deyr
Máninn líður, dauðinn ríður
í iðrum heljar djákni bíður
Garún garún svaraðu mér
hvað þér fyrir sjónir ber
Í hnakka þínum hvítan blett
er þú hleypir honum faxa á sprett
sé ég það, þú sýnir mér
í tunglskini skín kúpan ber
Garún garún hlustaðu nú
óttast eigi mig skalt þú
við ríðum harðar svo haltu fast
Í eilífð skulum sameinast
Myrká nálgast við náum senn
Yrtu ei ekki neina menn
stígðu hér af hestinum
haltu með mér að grafreitnum
Máninn líður, dauðinn ríður
í iðrum heljar djákni bíður
Garún garún svaraðu mér
hvað þér fyrir sjónir ber
Í hnakka þínum hvítan blett
er þú hleypir honum faxa á sprett
sé ég það, þú sýnir mér
í tunglskini skín kúpan ber
Garún
|
||||
7. |
Reimleikur
07:31
|
|||
Mykrinu í dvelur
djákninn og hann kvelur
stúlku þá er hann eitt elskaði
Gægist nú á glugga
augu rauð í skugga
blótar Guði og hann skyggist inn
Djákni beiskur bölvar
kirkjan djöfli aftrar
Lítur inn og öskrar hástöfum
“Komdu nú með mér
Garún mín eða ég
ryðst inn í kirkju og ræni þér”
Felur þig í ótta
frá mér enn á flótta
veistu ei að ég mun finna þig
örmum mínum í þá
veröld þinni frá
munum við svo hverfa í algleymi
Þinn Drottinn svarar engum ópum
köllum eða hrópum
svikull bæði og grimmur er
Hristu af þér Drottins hlekki
þeir halda okkur ekki
Herra þinn er máttlaus hér
Er mér þá öllum lokið?
Eru þá lífsins dyr lokaðar?
Mun mín kvöl aldrei enda?
Ég á nú inni heljardvöl
Einn get ég ei verið
Hún gæti linað mínar þjáningar
Garún, nú ég skal sýna þér
Að líf þitt skal tilheyra mér
Fylltu nú mitt svarta hjarta
Hvar er ljósið bjarta, sem að áður skein svo skært?
Ég hef gengið kalda drauma
Hatrið fundið krauma, er mennirnir sofa vært
Ég skal sýna þér hvað býr í myrkrinu
liggur falið handan lífs og dauða
Þetta líf er aðeins blekking
öll mannanna þekking, fjarar út er vindar gnauða
|
||||
8. |
Særing
06:55
|
|||
Vættir svífa vængjum á
er manna vitni hræðast vá
stálgrár himinn svartur sær
seiðkarlinn hann dregur nær
Andlit hulið, klæði svört
sindra augu stjörnubjört
nötrandi af kynngimætti
stendur móti (/andspænis) myrkravætti
Gleypa vindflot tunglsins ljós
mætast nú við feigðarós
drómar myrkurs sækja að
vanhelga árar bænastað
Til atlögu nú djákni ræðst
heljarmætti hefur glæðst
hvíta fönn nú þekur blóð
Djákni fylltur djöfulmóð
Nötrar jörð
fjallsins börð
klettar falla
er djákni kallar
Þú þekkir ekki sannann mátt
En þú munt kynnast honum brátt
Þinn Guð er breiskur og brotinn
Grimmur, svikull, rotinn
Ég hef heyrt stjörnurnar gráta
Ég hef séð englaskara smábörnum slátra
Ég hef heyrt myrkursins kall
Ég þekki meistarans nafn
Englaherir sækja að
berja augum bæjarhlað
blóði drifin ötuð jörð
Djákni krýpur í mýrarsvörð
Seiðkarlinn þá særir fljótt
galdrar lýsa dimma nótt
djúpa gröf hann djákna rekur
dregur til bjarg sem jörðu skekur
|
Streaming and Download help
If you like Riffrildi, you may also like:
Bandcamp Daily your guide to the world of Bandcamp